Góður árangur á Svæðistónleikum Nótunnar
Í gær sunnudaginn 19. mars voru tvennir Svæðistónleikar Nótunnar í
Salnum í Kópavogi
fyrir alla tónlistarskólana í Kraganum. Af
þeim 22 einstaklingum og hópum sem fram komu voru 7 atriði valin til að taka
þátt í lokahátíð Nótunnar í í Hörpu sunnudaginn 2. apríl n.k.
Frá Tónlistarskólanum okkar léku þau Natalía Yun Hauksdóttir á
sópranblokkflautu, Hafþór Óskar Kristjánsson á gítar, Hákon Aðalsteinsson lék á
píanó og söng og Isabella Mist Heiðarsdóttir og Áróra Friðriksdóttir sem léku
saman á tvo flygla allegro úr Concerto Romantique eftir C. Rollins.
Dómnefndin valdi þá Hafþór Óskar Kristjánsson gítarleikara og Hákon
Aðalsteinsson píanóleikara í hópinn sem fær að halda áfram og taka þátt í
lokahátíðinni í Eldborgarsalnum í Hörpu 2. apríl. Óhætt er að hrósa öllum
nemendunum sem komu fram fyrir hönd skólans í Salnum á sunnudaginn fyrir mjög
góða frammistöðu.
Á myndinni má sjá þá félaga Hafþór og Hákon með öðrum sigurvegurum dagsins.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla