Upphaf skólastafs 2014 - 2015
Nú stendur yfir undirbúningur í skólanum fyrir skólaárið 2014 – 2015
Til þess að umsókn nemenda teljist gild þarf að staðfesta hana með greiðslu skólagjalds.
Tekið verður við greiðslum fimmtudaginn 14. ágúst og föstudaginn 15. ágúst.
Óstaðfest umsókn fellur úr gildi að þeim tíma liðnum og öðrum nemanda gefinn kostur á skólavist.
Hafir þú af einhverjum ástæðum ákveðið að hefja ekki nám við skólann í vetur þá vinsamlegast tilkynntu
það á skrifstofu skólans sem allra fyrst.
Hægt er að greiða inn á reikning skólans sem er 0544 – 26 – 8061 og kennitala 590169 – 7579
Sé greitt inn á reikninginn þarf greiðandi að gefa upp kennitölu sína.
Senda skal staðfestingu um greiðslu á netfangið: hafdisg@tonhaf.is
Allar upplýsingar um hvenær nemendur eiga að hitta kennara sinn til stundatöflugerðar og skólabyrjun eru veittar um leið og umsókn er staðfest með skólagjaldi.
Kennsla hefst mánudaginn 1. september og í tónfræði 8. september.
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 17.00
- Eldri færsla
- Nýrri færsla