Ef til verkfalls kemur í Tónlistarskólanum
Samninganefndir tónlistarskólakennara og sveitarfélaga hafa átt í samningaviðræðum nú um langt skeið.
Samninganefndir tónlistarskólakennara og sveitarfélaga hafa átt í samningaviðræðum nú um langt skeið.
Því miður hafa viðræðurnar fram til þessa ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að, sem er að ná sambærilegum samningi og gerður var nýverið við grunn – og leikskólakennara .
Boðað hefur verið til verkfalls miðvikudaginn 22. október hafi samningar ekki náðst.
Á næstu dögum verður sendur tölvupóstur til allra nemenda og forráðamanna með upplýsingum um hvaða kennarar eru ekki í verkfalli.
Skorað er á nemendur og forráðamenn að fylgjast vel með gangi mála í samningaviðræðum tónlistarkennara og verður leitast við að setja inn á heimasíðu skólans nýjar upplýsingar um leið og þær berast
- Eldri færsla
- Nýrri færsla