Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna 30. janúar
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna er samstarfsverkefni 4 tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Kópavogs, Tónlistarskóla Garðabæjar og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. 80 ungir tónlistarnemar, flestir á grunn- og framhaldsskólaaldri, skipa hljómsveitina. Hljómsveitin æfir í Sölvhóli, sal Listaháskóla Íslands.
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna var stofnuð haustið 2004. Í janúarmánuði ár hvert hittast nemendur ásamt stjórnanda og raddþjálfurum og æfa tónleikadagskrá sem flutt er á tónleikum í lok mánaðarins. Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna veitir þeim sem komnir eru áleiðis í tónlistarnámi þjálfun í að leika í fullskipaðri hljómsveit og er hún mikilvægur vettvangur til þjálfunar í hljómsveitarleik undir handleiðslu viðurkenndra tónlistarmanna og stjórnenda. Sömuleiðis er framúrskarandi hljóðfæraleikurum úr hópi nemenda gefið tækifæri á að leika einleik með hljómsveitinni. Þá er á hverju ári íslenskt verk á efnisskrá hljómsveitarinnar.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla