Tónlistarskólar og skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu
Tímar í hljóðfærakennslu og söngkennslu fara fram í húsnæði eða heimastöð tónlistarskóla eða skólahljómsveita. Hóptímar s.s. hljómsveitartímar, hópæfingar, tónfundir, forskóli, tónfræðitímar og allir viðburðir tengdir þessari starfsemi falla niður. Viðmið þessi taka einnig til tónlistarnemenda sem eru eldri en 18 ára. Lögð er áhersla á að leitað sé leiða til að viðhalda virkni óháð fjarveru og niðurfellingu tónlistartíma. Nákvæm útfærsla verður ólík milli skóla.